Um okkur

Hús í hús ehf. er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í nýsmíði, viðhaldi og breytingum á fasteignum. Félagið er í eigu okkar feðganna Jökuls Daníelssonar og Daníels Jökulssonar og við höfum starfað saman frá árinu 2007. Við erum með á launaskrá 8-16 góða menn, breytilegt eftir árstíð og verkefnastöðu. Starfsstöðvar okkar og verkstæði er að Viðarhöfða , 110 Reykjavík.

Við erum með öll réttindi, mikla reynslu og góðan mannskap og erum í góðu samstarfi við fagmenn í öllum iðngreinum. Allir samstarfsaðilar okkar hafa starfsréttindi í sinni iðngrein.

Undanfarin ár hafa viðskiptavinir okkar aðallega verið verkfræðistofur, húsfélög og aðrir sem eiga og sjá um rekstur stærri fasteigna og setja kröfur um að fagmenn með reynslu og réttindi vinni verkin. Margir viðskiptavina okkar nýta sér þjónustu okkar ár eftir ár og sjáum við alfarið um viðhald og viðgerðir fyrir þá innanhús sem utan. Við erum stoltir af því trausti sem þessir aðilar hafa sýnt okkur.

Daníel Jökulsson
Húsasmíðameistari

Daníel Steinarr Jökulsson
Húsasmíðameistari
Jökull Daníelsson
Verkefnastjóri
Arnór Ingi Brynjarsson
Verkefnastjóri

​„Ég hef um langt árabil haft mikil og góð samskipti við feðgana Jökul Daníelsson og Daníel Steinarr Jökulsson sem nú eiga og reka fyrirtækið Hús í hús ehf. Verkefnin sem þeir hafa innt af hendi hafa verið fjölbreytt og oft krafist mikillar hæfni og útsjónarsemi við lausn flókinna vandamála. Það er mér sönn ánægja að staðfesta að allt samstarf hefur gengið ákaflega vel og einkennst af fagmennsku, öruggri þjónustu og lipurð í mannlegum samskiptum“

Þórarinn Magnússon
Verkfræðingur og fv. forstöðumaður framkvæmdadeildar Félagsbústaða hf.