Hobbíhús

Fullsmíðuð 15 fm. hobbíhús, óskráningarskyld og tilbúin til flutnings

Golfbílahús – Garðhús – Gestahús - Saunahús eða eitthvað allt annað.

Við smíðum smáhýsi eftir pöntunum til ýmissa nota. Við getum afhent húsin á því byggingarstigi sem óskað er eftir. Stærð, lögun, klæðning, hurðar, gluggar og fleira fer eftir óskum kaupanda. Húsin eru rammgerð, byggð úr fyrsta flokks efni fyrir íslenskar aðstæður og munu endast um ókomna tíð. Húsin eru smíðuð í Reykjavík af reyndum smiðum og síðan flutt samsett og tilbúin til niðursetningar á áfangastað.

Við gerum þér tilboð í hús eins og þú vilt hafa það. Við getum aðstoða þig frá upphafi til enda og svarað spurningum sem kunna að vakna, eins og t.d. um byggingareglugerðir, teikningar, leyfi, efni, niðursetningu, verðsamanburð og fl.

Við Krókháls 6 er hægt að skoða 15 fm. óskráningarskylt golfbílahús sem staðsetja má utan byggingarreits. Húsið er með rafmagni, inniljósum, útiljósum, ofni, gólfdúk, hallandi þaki og álklæðningu. Það er fullsmíðað og tilbúið til niðursetningar.

Húsið er klætt að utan með dökkgrárri álklæðningu frá Áltak. Hvít bílskúrshurð með gluggum að framan og inngangshurð með glugga á langvegg. Tvö útiljós. Að innan er húsið allt klætt með rakavörðum spónarplötum og veggir málaðir hvítir. Vatnsheldur dúkur er á gólfum. Rafmagn hefur verið lagt í húsið. Innandyra er ofn og tvö inniljós. Rafmagn er utanáliggjandi.

Verð 6.500.000 kr. með vsk

Verð á fm. 433.333 kr. með vsk

Álklæðning er töluvert dýrari en tréklæðning. Gluggar eru í bílskúrshurð og inngangshurð. Gólf eru fullbúin með vatnsheldum vínildúk en ef sambærilegt hús á að standa á steyptum grunni breytast forsendur.

Verð 3.600.000 kr. með vsk

Verð á fm. 240.000 kr. með vsk

Verð á húsunum geta verið mjög mismunandi og fer það eftir stærð, efnisvali, frágangi og ýmsu öðru sem kaupandi biður um.

Teikningar

Þegar við vitum hverslags hús þú hefur í huga þá getum við gefið þér tilboð í húsið þitt. Gott er að hafa svör við eftirfarandi spurningalista.

Hafir þú áhuga á frekari upplýsingum er þér velkomið að hafa samband við okkur. Þú getur sent okkur fyrirspurn hér eða sent okkur tölvupóst á husihus@husihus.is

Það skal vanda sem lengi á að standa